KNX hússtjórnunarkerfi
Hönnun, forritun og þjónusta á KNX-kerfum fyrir heimili og fyrirtæki. Við tökum að okkur verkefni um allt land.
Hvað er KNX?
KNX er opinn staðall fyrir hússtjórnun. Lýsing, hiti, gardínur og aðrar stýringar eru tengdar saman með einum stýristreng, í stað þess að hver rofi stýri aðeins einu ljósi. Þannig er hægt að stjórna mörgu úr einum rofa, setja upp senur og tímastýringar og stjórna húsinu úr síma.
Þar sem KNX er staðall en ekki vara eins framleiðanda er hægt að nota búnað frá mörgum framleiðendum og bæta við kerfið síðar. Vel uppsett kerfi endist í áratugi.
Hvað við gerum
- Hönnun kerfis. Val á búnaði, staðsetning rofa og skynjara og hvaða aðgerðir kerfið á að sjá um.
- Uppsetning. Töflubúnaður, rofar og skynjarar settir upp og tengdir.
- Forritun og gangsetning í ETS 6.
- Yfirferð, lagfæringar og uppfærsla á eldri kerfum.
- Forritun fyrir aðra rafverktaka sem leggja og tengja kerfið sjálfir.
Virkar KNX-kerfið ekki eins og þú vilt?
KNX-kerfi verður aldrei betra en forritunin á því. Þegar fólk er óánægt með KNX er ástæðan oftast forritunin, ekki búnaðurinn. Það eru góðar fréttir, því forritun er hægt að laga án þess að skipta kerfinu út.
Kannastu við eitthvað af þessu?
- Rofar gera annað en þú býst við, eða enginn skilur þá lengur.
- Senur og tímastýringar eru aldrei notaðar.
- Ljós flökta eða slokkna ekki alveg eftir að skipt var yfir í LED.
- Gamli snertiskjárinn er hægur eða hættur að virka.
- Ekki er hægt að stjórna húsinu úr síma.
- Enginn veit hver forritaði kerfið eða hvernig það er sett upp.
Við förum yfir forritunina, lagfærum það sem virkar ekki sem skyldi og einföldum það sem er óþarflega flókið. Við setjum líka upp stjórnun úr síma og spjaldtölvu, sem getur komið í stað gamla snertiskjásins. Eldri dimmar ráða oft illa við LED-ljós, og þá skiptum við þeim út fyrir dimma sem eru gerðir fyrir LED. Hvert kerfi er skoðað fyrir sig og við finnum með þér hvað borgar sig að gera.
Verkefni um allt land
Hönnun og undirbúningur forritunar fer að mestu fram áður en komið er á staðinn. Þess vegna tökum við að okkur KNX-verkefni hvar sem er á landinu, einnig í samvinnu við rafverktaka á hverjum stað.
Þú færð gögnin afhent
Í lok verks færðu afhent ETS-verkefnið ásamt yfirliti yfir hópföng og búnað. Þá getur hver sem er með KNX-þekkingu þjónustað kerfið síðar og þú ert ekki bundinn einum aðila.
Algengar spurningar
Er hægt að setja KNX í eldra hús?
Já, en það er einfaldast þegar verið er að endurnýja raflagnir hvort sem er, því leggja þarf stýristreng að rofum og skynjurum. Ef ekki stendur til að leggja nýtt er Plejd oft betri kostur, því það er þráðlaust og notar lagnirnar sem fyrir eru.
Hvað kostar KNX-kerfi?
Það fer eftir stærð hússins og hvað kerfið á að gera. Kerfi sem stýrir lýsingu og hita kostar mun minna en kerfi sem sér líka um gardínur, loftræstingu og hljóðkerfi. Við förum yfir þarfirnar með þér og gerum tilboð út frá þeim.
Get ég stjórnað kerfinu úr síma?
Já. Með IP-tengingu og stjórnforriti er hægt að stjórna ljósum, hita og gardínum úr síma eða spjaldtölvu, bæði heima og að heiman.
Hvað ef forritunarskráin (ETS-skráin) finnst ekki?
Best er ef skráin er til, því þá getum við farið beint yfir forritunina og lagfært hana. Athugaðu því fyrst hvort sá sem setti kerfið upp eða fyrri eigandi á hana. Ef hún finnst ekki lesum við út það sem hægt er úr kerfinu og forritum upp á nýtt það sem vantar. Teikningar og önnur gögn um kerfið flýta þá mikið fyrir. Í lok verks færðu skrána afhenta svo hún týnist ekki aftur.
Önnur þjónusta
Raflagnir í nýbyggingar og breytingar
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
Plejd snjallstýring og pottastýringar
Ertu með KNX-verkefni?
Hringdu eða sendu okkur línu og segðu okkur frá húsinu og hvað kerfið á að gera.