Hleðslustöðvar fyrir rafbíla

Uppsetning hleðslustöðva fyrir heimili og fjölbýli á Akureyri og um allt Norðurland. Löggiltir rafverktakar sem sjá um verkið frá skoðun til tilkynningar.

Svona gengur þetta fyrir sig

  1. Þú hefur samband. Segðu okkur hvernig húsnæði þetta er og hvar bíllinn stendur. Ef þú ert búinn að kaupa stöð, segðu okkur hver hún er.
  2. Við skoðum aðstæður. Rafmagnstaflan, leiðin að bílastæðinu og hvort húsið er með einfasa eða þriggja fasa rafmagn. Þú þarft ekki að vita neitt af þessu fyrirfram.
  3. Við setjum stöðina upp. Sérgrein úr töflu, rétt lekastraumsvörn og stöðin stillt eftir örygginu, svo hún tekur aldrei meira en lögnin ræður við.
  4. Við tilkynnum verkið til HMS. Það er skylda, og það er hluti af okkar þjónustu.

Hvaða stöð hentar?

Hleðslustöðvar eru allar mjög svipaðar, og oftast setjum við upp stöð sem húseigandinn er þegar búinn að kaupa. Ef þú ert ekki búinn að velja getum við aðstoðað við valið.

Hversu hratt stöðin hleður fer eftir bílnum og rafmagninu í húsinu, og það metum við í hverju verki fyrir sig. Flestir hlaða á nóttunni, og þá skiptir hraðinn sjaldnast máli.

Einbýli og raðhús

Yfirleitt er stöðin sett á vegg við bílastæði eða í bílskúr og tengd með sérgrein úr rafmagnstöflu. Ef húsið er með einfasa rafmagn hleður stöðin hægar, en það er yfirleitt lítið mál að breyta í þriggja fasa ef þú vilt meiri hraða. Í eldri húsum borgar sig oft að endurnýja rafmagnstöfluna í leiðinni.

Fjölbýlishús og húsfélög

Í fjölbýli borgar sig að skipuleggja fyrir öll stæðin strax, jafnvel þótt aðeins nokkrar stöðvar séu settar upp í byrjun. Með sameiginlegri álagsstýringu nýtist heimtaugin betur og hægt er að bæta við stöðvum síðar án þess að endurnýja lagnirnar. Einnig er hægt að velja kerfi þar sem hver íbúð greiðir fyrir sína notkun.

Við aðstoðum húsfélög við að meta heimtaugina, sjáum um samskipti við Norðurorku og finnum lausn sem hentar húsinu.

Algengar spurningar

Þarf ég þriggja fasa rafmagn fyrir hleðslustöð?

Nei. Stöðin virkar bæði á einfasa og þriggja fasa rafmagni. Við skoðum hvað hentar í þínu húsi.

Get ég ekki bara hlaðið í venjulegan tengil?

Það er hægt til bráðabirgða, en venjulegir tenglar eru ekki gerðir fyrir mikið álag í marga klukkutíma í senn. Notaðu aldrei framlengingarsnúru eða fjöltengi til að hlaða. Hleðslustöð er öruggari, hleður hraðar og hægt er að stýra henni.

Má ég setja stöðina upp sjálfur?

Nei. Hleðslustöð þarf að vera sett upp af löggiltum rafverktaka og tilkynnt til HMS.

Þarf að breyta rafmagnstöflunni?

Stundum. Í eldri töflum er ekki alltaf pláss eða réttur búnaður fyrir nýja grein. Ef skipta á í þriggja fasa í eldra húsi þarf hvort sem er að endurnýja hluta af búnaðinum í töflunni, og þá munar oft litlu að endurnýja töfluna alla í leiðinni. Við metum þetta þegar við skoðum aðstæður.

Hvað tekur uppsetningin langan tíma?

Hefðbundin uppsetning í einbýli tekur yfirleitt hluta úr degi. Ef leggja þarf langa leið eða breyta töflunni tekur það lengri tíma.

Önnur þjónusta

Raflagnir í nýbyggingar og breytingar
KNX hússtjórnunarkerfi
Plejd snjallstýring og pottastýringar

Viltu fá hleðslustöð?

Hringdu eða sendu okkur línu. Gott er að segja okkur hvernig húsnæði er um að ræða og hvar bíllinn stendur.